Lýsing

"FJÖLLIN HEILLA"


Verkefnið „Haustfjöll með Ásdísi og Sirrý“ er fyrir alla sem eru í góðu gönguformi eftir sumarið og miðast 

erfiðleikastig og gönguhraði ferða við allt að þrjá skó.

Farið verður í fjórar dagsferðir um helgar á tímbilinu 12. sept. til 3. október.

Sjá meira um verkefnið hér:

Haustfjöll 2026


Búnaður

  • Gönguferðir: 2 skór

    Miðlungserfiðar ferðir: Miðlungslangar dagleiðir, yfirleitt 5 - 7 klst. oftast utan slóða og/eða í hæðóttu landi. Bakpoki þarf ekki að vera þungur. Engar eða auðveldar ár. Þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfun.


    Nauðsynlegur búnaður er meðal annars:

    Góðir gönguskór sem ætlaðir eru til dagsferða með góðum stuðningi

    Göngustafir ef vill

    Bakpoki (dagpoki) gott að hann sé með bakpokahlíf

    Sólgleraugu, sólarvörn og varasalvi

    Sjúkragögn, hælsærisplástur, teygjubindi og verkjalyf og annað smálegt

    Viðeigandi fatnaður, hlífðarföt, regnföt (vaðskór ef gefið er upp að það þurfi að vaða)

    Vatn/drykkir og nesti til dagsins (gott að hafa orkuríkt nesti og göngunasl)

    Alltaf gott að hafa í bakpokanum: Flugnanet, legghlífar, auka sokkar, buff og brodda; svokallaðir Esjubroddar eiga að duga í svona ferð.

  • Gönguferðir: 3-4 skór

    Erfiðar ferðir: Nokkuð langar dagleiðir, 6 - 8 klst. Gengið í fjalllendi og jafnvel lausum skriðum. Getur þurft að vaða erfiðar ár. Ef gist er þá er það oftast í húsum og þá þarf að bera svefnpoka.


    Mjög erfiðar ferðir: Erfiðar og langar dagleiðir yfir 10 klst. Gengið með allt á bakinu, oft í bröttu fjalllendi, lausum skriðum og stórgrýti. Búast má við erfiðum ám. Aðeins fyrir fólk í mjög góðri þjálfun.


    ATH. Fararstjóri tekur fram ef annan búnað þarf


    Nauðsynlegur búnaður er meðal annars:

    Gönguskór sem henta utan slóða og veita góðan stuðning

    Bakpoki (dagpoki) gott að hann sé með bakpokahlíf

    Göngustafir ef vill

    Sólgleraugu, sólarvörn og varasalvi, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír

    Höfuðljós ef búast má við að ganga í myrkri

    Viðeigandi fatnaður, hlífðarföt, sokkar til skiptanna, húfa og vettlingar

    Vaðskór ef gefið er upp að það þurfi að vaða

    Sjúkragögn, hælsærisplástur, teygjubindi og verkjalyf og annað smálegt

    Vatn/drykkir og nesti til dagsins (einnig göngunasl)

    Hæfilegt magn af orkuríku nesti og drykkjum (eftir lengd, aðstæðum og fyrirkomulagi ferðar)

    Alltaf gott að hafa í bakpokanum: Flugnanet, legghlífar, buff og léttir broddar, viðgerðasett (nál, tvinni, lítil skæri), klemmur

    Kort, áttaviti, GPS tæki